Hvað verður um Samfylkinguna? Um það verður spurt í umræðunni á Hringbraut annað kvöld.
Þá mætast fyrrum varaformaður Samfyllkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson og þingmaðurinn Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir.
Þau eru á öndverðum meiði um hvað beri að gera flokknum tikll bjargar.
Ágúst Ólafur er í hópi þeirra sem vilja gera gagngerar breytingar, til dæmis að skipta um nafn og merki, taka upp upp rauðu rósina og nefna flokkinn Jafnaðarmannaflokk Íslands.
Ólína telur vörumerki flokksins felast í stefnu hans, ekki nafninu.
Umræðan um framtíð Samfylkingarinnar verður á Hringbraut annað kvöld klukkan 21:45.