Hvað verður um angelinu og börnin?

Borgar Þór Einarsson, lögmaður og Katrín Júlíusdóttir, þingmaður fara yfir vel valin efni út fréttum vikunna á Þjóðbraut í kvöld á tíunda tímanum. Þau voru sammála um að Framsóknarflokkurinn ætti að tefla fram Lilju Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra sem formannsefni á flokksþinginu um þarnæstu helgi. Katrín sagðist þó hafa miklar efasemdir um að karlarnir tveir, Sigmundur Davíð og Sigurður Ingi væru tilbúnir til að sameinast um að kjósa Lilju og stíga þá sjálfir út úr sviðsljósi formannskjörsins.

Einnig voru rædd þau kjör sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti fær miðað við frumvarp til fjáraukalaga. Þar stendur að hann muni þurfa 3 milljónir króna fyrir að hafa aðstoðarmann þar sem hann hafi enn nokkur mál á sínu borði.

Borgar Þór sagði að sér sýndist að þarna væri búið að stofna nýtt embætti fyrir fyrrverandi forseta. Þau tóku bæði undir að þarna væri sett fordæmi og þetta væri nýtt af nálinni.

Hjónaskilnaður í Hollywood bar á góma, kvikmyndstjarnanna Brad Pitts og Angelinu Jolie og sýnist gestum svo að málið væri eflaust eitthvað sem flestir kynnu betur skil á en stórfréttir nútímans aðrar.

Fleira bar á góma og aðallega Vigdísarskýrslan svonefnda, sem skilað var úr fjárlaganefnd í lok viku með nafni formanns nefndarinnar einu á. Málið á sér engin fordæmi og sögðu Borgar Þór og Katrín bæði að gott yrði að óháðir erlendir sérfræðingar væru fengnir til að skoða seinni einkavæðingu bankanna. Katrín bætti við að vert væri að slíkt fólk myndi líka skoða fyrri einkavæðinguna. Það væri mikilvægt í ljósi þess að ríkið muni á næstunni selja sinn hlut í núverandi bönkum.