Sigurður Pálsson, forstjóri Byko, er í skemmtilegu spjalli hjá Jóni G. í kvöld. Þeir koma víða við og rifja m.a. upp þegar byggingageirinn lagðist nánast á hliðina í hruninu fyrir tíu árum. Núna er annað upp á teningnum og mikil þensla í atvinnugreininni. Þeir ræða gerbreytta kauphegðun neytenda, fyrirtækjamenningu og hvers vegna Byko breytti gömlu og frægu slagorði sínu fyrir nokkrum árum. Að sjálfsögðu verður ekki komist hjá því að ræða um plankastrekkjarann fræga í gömlum auglýsingum Byko þar sem Siggi Sigurjóns leikari fer á kostum. Hvar er plankastrekkjarinn? Jú, í anddyri Byko í Breiddinni. Í stærri líkingu má segja að byggingariðnaðurinn sjálfur hafi lent í öflugum plankastrekkjara frá hruni.
Hvað varð um plankastrekkjarann?
Fleiri fréttir
Nýjast