Ljóst er að þjóðin er þverklofin í afstöðu sinni til þeirrar hugmyndar að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verði áfram forseti landsins.
Næsta ár verða 20 ár síðan hann settist á forsetastól. Hrýs mörgum hugur við fjórum árum enn.
Allmargt áhrifafólk í samfélaginu hafa sagt á opinberum vettvangi að setja verði lög sem banni einstaklingum að sitja svo lengi á ráðastóli. Í viðtali DV við Ólaf Ragnar í gær verður ekki annað séð en að forsetinn gefi þeirri hugmynd mjög undir fótinn að hann hyggist bjóða sig fram næsta ár.
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi VG á Akureyri, er gagrýnin á að þjóðin sitji uppi með Ólaf Ragnar fjögur ár enn eftir fyrri 20.
„Mér finnst svo margir rökstyðja stuðning við hann með því að hann hafi gert svo gott mót í Icesave málinu. Ég spyr: er nóg að gera eitt gott mót og þá er eðlilegt að viðkomandi sé bara forseti forever?“
Helsta bakland Ólafs Ragnars kom frá vinstri mönnum þegar hann bauð sig fyrst fram en fylgið hefur síðan hallast til hægri.