Hvað merkir í raun "okkar útvarp"?

Sigríður Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður Illuga Gunnarssonar mennta- og menningarmálaráðherra er vænd um að hafa beitt fréttamenn RÚV þrýstingi vegna viðtals við ráðherra um hagsmunaskráningu þingmanna. Sigríður sagði við vaktstjóra fréttastofunnar, Ragnhildi Thorlacius, að hún væri að hafa samband vegna þess að RÚV væri „okkar útvarp“. Fréttamenn á RÚV eru sagðir ósáttir við þessi vinnubrögð aðstoðarmannsins við að koma á viðtali við Illuga.


Forsaga málsins er sú að aðstoðarmaðurinn hafði samband við fréttastofu RÚV á sunnudag og bað um að ráðherranum yrði gert kleift að tjá sig í framhaldi af frétt í hádegisfréttum miðilsins á laugardag um að GRECO, hópur ríkja gegn spillingum, hefði gagnrýnt Íslands fyrir að bregðast ekki við tillögum um hagsmunaskráningu þingmanna.


Í Fréttablaðinu í dag er eftirfarandi haft eftir Ragnhildi: "Síðan segir hún eitthvað á þá leið að hún sé að hafa samband af því að „þið eruð útvarpið okkar“. Ég hvái og segi: við erum í eigu þjóðarinnar. Þá segir hún að þetta sé stofnun sem heyrir undir menntamálaráðuneytið. Ég segi að ég sjái ekki hvernig það komi málinu við. Og hún segir að það sé engin dýpri merking á bak við það. Það er það sem okkur fer á milli. Svo lýkur þessu samtali.“


Sigríður segist hafa haldið að símtalið hafi verið góðlátlegt og að ummæli hennar hafi verið sett fram í hálfkæringi. Henni sé brugðið að Ragnhildur hafi túlkað orð hennar með þessum hætti og hafi beðið hana afsökunar. Engin djúp meining hafi verið á bakvið orðin. „En maður lærir bara af því og vandar sig betur í samskiptum.“