Hvað kostar kristján loftsson?

Varla hefur sá dagur liðið í sumar að erlendir fjölmiðlar hafi ekki fjallað um hvalveiðar Íslendinga. Til algerra undantekninga heyrir ef slík umfjöllun er jákvæð.

Áhugavert væri að vita hvað það kostar þjóðarbúið í beinhörðum peningum að halda úti þessum veiðum, sem varpa svo miklum skugga á okkur sem þjóð á alþjóðlegum vettvangi. Neikvæð umfjöllun sem þessi, sem mallar dag eftir dag í stærstu fjölmiðlum heims hlýtur að hafa neikvæð áhrif á möguleika þjóðarinnar til tekjuöflunar.

Hversu margir ferðamenn koma ekki vegna hvalveiðanna og hversu mikið minnkar þetta eftirspurn eftir íslenskum afurðum erlendis? Hagsmunaðailar hljóta að íhuga að skoða hver skaðinn er, hvað hvalveiðar Kristjáns Loftssonar kosta okkur hin.