Hvað kostar að kaupa í matinn?

Lambahryggur af stærri gerðinni (3,5 kíló) kostar sitt eða samtals 7.968 krónur. En kílóverðið er 2.299 krónur. Margir veigra sér við að kaupa slíkt magn af kjöti.

Fulltrúi Bændablaðsins fór í verslun Krónunnar og skoða verðmiða á íslensku ófrosnu kjöti og fiski.

Þegar verð er borið saman er ódýrasti kosturinn grísahakk.

Ýsa sem eitt sinn var einn ódýrasti matur sem landsmenn gátu keypt er um miðbik þessa lista en þar er matnum raðað eftir kílóverði.

Kílóverð á ýsuflökum er 1.954 krónur sem er rétt um 30% hærra verð en á uppþídda lambalærinu sem kostar 1.499 krónur kílóið.

Neytendur hafa bent á að lambakjöt sé í of stórum  pakkningum og óhentugum skammtastærðum.  

 

Nánar www.bbl.is

[email protected]