Gagnrýni katrínar í garð íhaldsins rifjuð upp

Í dreifingu um alnetið fer nú sem eldur í sinu mynd sem sýnir fyrirhugaðar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar úr fjárlögum 2018. Eru skattahækkanirnar sagðar í boði forystu Sjálfstæðisflokksins, sem fer með fjármála- og efnahagsráðuneytið.

Eru þær sagðar bætast við þær ríflega 50 skattahækkanir sem Sjálfstæðisflokkurinn hafi lögfest síðan 2013.

Jæja-hópurinn hefur dreift myndinni, en hann hefur skipulagt ýmis mótmæli í gegnum tíðina.

\"\"

Skattaflokkur

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, virtist höggva í sama knérunn, á landsfundi VG í október 2017:

„Það þarf að  byggja upp inn­við­ina um land allt. Auka raf­orku­ör­yggi um allt land, bæta sam­göngur eða fjar­skipti. Við getum gert það og við eigum að gera það. Gerum bet­ur. Kæru vin­ir, hug­mynda­snauðir hægri­menn munu halda því fram að þetta sé ekki hægt; það sé bara ekki til nóg af pen­ing­um. Hvern­ig? segja þeir. Hver á að borga? Þarf ekki að hækka skatta á almenn­ing og fyr­ir­tæki til að standa undir þess­ari stefnu?

Og reyndar eru þeir þegar byrj­aðir með hræðslu­á­róður um skatta­hækk­anir vinstri­manna. Sjálfur skatta­flokk­ur­inn. Því hvað hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gert annað en að hækka skatta á almenn­ing? Eða var það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í félagi við Fram­sókn sem hækk­aði virð­is­auka­skatt á mat­væli á síð­asta kjör­tíma­bili? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og fylgitungl hans sem boða nú veggjöld í massa­vís? Er það ekki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem ætl­aði að hækka virð­is­auka­skatt á ferða­þjón­ustu? Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn getur lítið sagt um aðra. Hann er skatta­flokk­ur. En við munum ekki hækka skatta á almenn­ing í land­inu heldur munum við reka sann­gjarna skatta­stefnu,“ sagði Katrín.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/12/katrin-jakobsdottir-hvad-hefur-sjalf%C2%ADstaed%C2%ADis%C2%ADflokk%C2%ADur%C2%ADinn-gert-annad-en-ad-haekka-skatta-almenn%C2%ADing/