Hvað hefur ees-samningurinn fært okkur?

EES-samningurinn hefur verið töluvert til umræðu í þjóðfélaginu að undanförnu og þá sérstaklega í tengslum við hinn umdeilda þriðja orkupakka. Svo virðist sem ákveðinn hópur vilji að Ísland segi skilið við EES-samninginn en samningurinn er þessum hópi mikill þyrnir í augum. Samningurinn hefur lengi verið talinn einn mikilvægasti utanríkismálasamningur þjóðarinnar enda veitir hann okkur aðgang að hinu Evrópska efnahagssvæði sem er samstarfsverkefni ESB og EFTA.

Í Fréttablaðinu í dag er samantekt yfir þann ávinning sem samningurinn hefur skilað íslensku samfélagi og þjóðarbúinu.

Meðal þess sem þar er nefnt til sögunnar er að samkvæmt Evrópureglugerð, sem tók gildi 2017, hafi verið kveðið á um að neytendur greiði sama gjald fyrir farsímanotkun á ferðalögum innan EES og í heimalandi sínu. Þetta hafi lækkað símakostnað margra mikið enda voru hin svokölluðu reikigjöld oft á tíðum himinhá og gátu kostað fólk stórfé.

Einnig kemur fram að stjórnvöld hyggjast breyta lögum um leigubifreiðar vegna EES-samningsins en núverandi reglur eru ekki taldar samrýmast samningnum. Með nýju lögunum á að tryggja meira frjálsræði og um leið örugga og góða þjónustu.

Frjálst flæði vinnuafls innan EES hefur gert Íslendingum kleift að búa og starfa innan EES-svæðisins án vandkvæða og um leið hafa íbúar annarra ríkja á svæðinu sama rétt til að búa hér og starfa. Frá því að samningurinn tók gildi hefur hlutfall erlendra ríkisborgara hér á landi hækkað úr tveimur prósentum í þrettán. Fyrirtæki eiga auðveldar með að sækja sér erlent vinnuafl sem þau hafa oft á tíðum þörf fyrir en það getur skipt sköpum fyrir rekstur þeirra.

Samkvæmt samningnum eiga vörur að geta streymt tolla og gjaldalaust á milli aðildarríkjanna en þetta stuðlar að fjölbreyttara vöruframboði. Þetta hefur einnig áhrif á netverslun en stefnt er að samþykkt nýrra laga á næsta þingi sem kveða á um að allir hafi aðgang að sömu vöru á sama verði og er í boði erlendis. Þannig á íslenskur neytandi að geta pantað vöru frá meginlandinu á sama verði og íbúi í viðkomandi ríki greiðir fyrir hana.

Þá má ekki gleyma því að samningurinn gerir íslenskum námsmönnum kleift að stunda nám innan EES og einnig eiga þeir möguleika á fjárstyrkjum. Einnig auðveldar samningurinn fræðimönnum að taka þátt í samstarfi með evrópskum háskólum.