Það verður veisla í fótboltaþættinum 433 í kvöld en þar fær Hörður Snævar Jónsson til sín góða gesti til að ræða árangur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu sem fer nú eins og kunnugt er með himinskautum.
Gestir þáttarins verða þeir Hjörtur Hjartarson íþróttafréttamaður, Magnús Már Einarsson ritstjóri fotbolti.is og Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður sem elt hefur landsliðið á röndum síðustu vikur og mánuði, enda er hann með í smíðum hbeimildarmynd um liðið og för þess á EM í Frakklandi á næsta ári.
Það ber margt á góma í spjalli gestanna í fótboltaþættinum 433 í kvöld og þar er ekkert verið að sleppa umræðu um partístandið á mönnum eftir leikinn sem fleytti þeim til Frakklands, sem er sögulegt afrek, enda hefur jafn fámenn þjóð og Íslendingar eru ekki áður komist á stórmót í knattspyrnu.
Fótboltaþátturinn 433 er frumsýndur klukkan 21:30 í kvöld.