Þorgerður er viðreisn mikils virði

Hvers virði er framboð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur fyrir Viðreisn - og hvers virði er endurnýjuð forysta fyrir Framsóknarflokkinn - og hvert er Sjálfstæðisflokkurinn að fara?

Þetta voru nokkrar meginspurninganna í fréttaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld en þar settust Andri Ólafsson, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Eyrún Magnúsdóttir, umsjármaður helgarblaðs Morgunblaðsins á rökstóla með Sigmundi Erni og ræddu helstu fréttamál líðandi stundar, svo sem stóra Arnars Páls og feita karls málið sem bar fyrst á góma í þættinum, en þaðan renndu þremenningarnir sér fótskriðu í stöðu stjórnmálanna hér á landi þar sem landslagið virðist vera á all mikilli á hreyfingu.

Viðmælendur Sigmundar voru sammála um að það væri mikill fengur fyrir Viðreisn að fá Þorgerði Katrínu til liðs við sig og sömuleiðis skellur fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem greinilega væri að flýja miðjuna af sama ákafa og Samfylkingin, þótt hvor flokkurinn haldi þar í sína áttina. Þau töldu einnig daga Sigmundar Davíðs á formannsstóli Framsóknarflokksins að baki, svo augljóst formannsefni sem Sigurður Ingi Jóhannsson væri nú um stundir, í raun táknmynd þeirra gömlu, staðföstu og trúverðugu formanna flokksins sem voru og hétu á gullöld hans.

Fiskeldismálin voru líka í brennidepli í þættinum, einkum spurningin hvort Íslendingar ætli að endurtaka mistök Norðmanna í fjörðum þar eystra, en ótti íslenskra laxveiðimanna virðist vera þar á nokkrum rökum reistur.

Loks bar fjársvelti leikskólanna á góma, svo og grunnskólans, framhaldsskólans og háskólans, en einu virðist gilda hvort vinstrimenn eða hægrimenn sitji við völd hjá ríki og borg; málefni barna og fjölskyldna virðast vera fjársvelt sem aldrei fyrr - og forgangsröðin harla brengluð á báðum vængjum stjórnmálanna.

Ritstjóranir eru endursýndir á Hringbraut í dag.