Hvað gerir katrín?

Í undanförnum tvennum kosningum er aðdáunarvert hvernig VG hefur tekist að leika tveimur skjöldum gagnvart kjósendum sínum. VG er nánast eins og tveir flokkar. Annars vegar er VG þjóðernissinnaður, íhaldssamur (framsóknar)flokkur sem byggir kísilver á landsbyggðinni en hins vegar félagshyggjuflokkur sem talar um umhverfisvernd í eyru höfuðborgarbúa sem hallast til vinstri.

Nú bendir ýmislegt til þess að ríkisstjórnarsamstarf VG við hina framsóknarflokkana og þau erfiðu mál sem hafa komið upp á árinu séu að verða þess valdandi að sífellt fleiri kjósendur þeirra sjái í gegn um flokkinn. Á síðustu dögum hafa tvö ungmenni sem margir á vinstri kantinum líta til yfirgefið flokkinn, þau Hildur Knútsdóttir og Unnteinn Manuel Stefánsson.

Yfirlýsing Unnsteins á Facebook hefur verið deilt af 1100 manns og yfirlýsing Hildar var lengi mest lesna fréttin á Stundinni. Hvort tveggja verður að teljast þung högg fyrir flokkinn.

Katrín Jakobsdóttir er kænn stjórnmálamaður, en erfitt er að sjá hvaða meðölum hún getur beitt til að lækna innanmein flokksins og koma í veg fyrir frekari liðsflótta. Augljóst er að framhald verður á fylgisflótta frá flokknum og ríkisstjórnarsamstarfið verður sífellt kostnaðarsamara.