Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, verður gestur í Þjóðbraut í kvöld.
„Mikil umræða hefur verið að undanförnu um háa bónusa,“ sagði Björt á Alþingi í vikunni. „Fólk er eðlilega reitt enda eru áformin ekki í takt við þau viðmið sem við sem samfélag einsettum okkur eftir hrun. Hæstvirtur fjármálaráðherra sagði við þetta tilefni að bónusarnir lyktuðu af sjálftöku en bætti því við, sem skiptir líka máli, að bónusgreiðslur væru meðhöndlaðar eins og tekjur. Og svona gríðarlega háar tekjur launafólks eru skattlagðar tæplega til helminga. Ég hef áhuga á að spyrja hæstvirtan fjármálaráðherra, sem segir þessar greiðslur lykta af sjálftöku: Hvað finnst honum þá um háar arðgreiðslur fyrirtækjaeigenda í sinn eigin vasa? Það er auðvitað þannig, eins og háttvirtur ráðherra veit, að eigendur fyrirtækja ákveða sjálfir hve mikið þeir greiða sér í arð þegar hagnaður er af rekstri þeirra.“