Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir í Þjóðbraut í kvöld að ein af stóru spurningunum núna sé hvað félagið Dekhill fékk út úr sölu ríkisins á stórum hlut í Búnaðarbankanum. Og einnig, hver eigi Dekhill.
Ein af þeim spurningum sem standa eftir að mati Vilhjálmar Bjarnasonar er hver stóð að baki Dekhill félagi sem fékk fé úr gjörningnum í sölu Búnaðarbankanum 2003. Einnig spyr Vilhjálmur hver sé að baki þess félags. Hann segir einnig í Þjóðbraut að mest sé um vert á þessari stundu að skoða fyrningarlög gagnvart þeim sem blekktu íslensk stjórnvöld eins og rannsóknarnefnd Alþingis um söluna á bankanum hefur bent á.