Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar er þekktur fyrir litríkt líkingamál.
Hann grípur gjarnan til líkinga um mat og matreiðslu, en í dag var honum einn drykkur hugleiknari en aðrir.
Í viðtali á Bylgjunni sagði Logi að hugmyndin um velferðarsamfélög Norður-Evrópu væri „jafngömul og uppskriftin að Coca-Cola.“
Síðar gagnrýndi hann skattalækkunarhugmyndir Sjálfstæðisflokksins, sem kæmu hinum tekjuhæstu best en þýddu um fimm þúsund króna lækkun fyrir þá tekjulægstu.
„Það er eins og ein heimsend pítsa með kóki og brauðstöngum,“ bætti hann við.
Hvað er þetta með loga og kókið?
Fleiri fréttir
Nýjast