Hvað er afrek?

,,Við þurfum að endurskilgreina afrek\" sagði Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, í viðtali við Sirrý í þættinum Lífsins list á Hringbraut í gærkvöldi. 

Sóley ræddi um að það er fleira afrek en að lyfta þungum hlutum og halda á bikurum. ,,Afrekum kvenna hefur ekki verið gerð nægilega góð skil.\" Því er nú óskað eftir hugmyndum og ábendingum um afrek kvenna í tilefni af sýningunni ,,Afrekssýning kvenna á Íslandi\" sem sett verður upp í Ráðhúsinu í september. Óskað er eftir ábendingum um afrek kvenna af öllum stærðum og gerðum, bæði fyrr á dögum og í samtímanum. 

Ráðhúsið mun verða troðfullt að utan og innan af lífi og uppákomum þegar sýningin fer af stað. Hún verður sett upp í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Hugmyndir óskast á afrekasyning@reykjavík.is 

,,Hverjum datt til dæmis í hug að þeyta rjóma?\" spurði Sóley og sagði tímabært að endurskilgreina hugmyndir okkar um afrek. Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is.