Skemmtifræðslan Hvað ef? var sett þrisvar sinnum á svið í Eldborg í Hörpu í gær en nú hafa 45.000 mann séð sýninguna á undanförnum tíu árum.
Hvað ef? skemmtifræðslan er leiksýning sem notast við leik, söng, ljóð og tónlist til fræðslu á skemmtilegan hátt. Farið er yfir staðreyndir varðandi neyslu vímuefna, eineltis, sjálfsmorða og fleira. Markmið með sýningunni er að sýna unglingum fram á að þeir hafi vel og að sakleysislegar stundarhrifsákvarðanir geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
Eftir að síðustu sýningu lauk í gær stigu á svið stelpurnar úr Hagaskóla sem unnu Skrekk á dögunum og vöktu verðskuldaða athygli. Leikararnir sem setja upp sýninguna Hvað ef? eru Kolbeinn Arnbjörnsson, Thelma Marín Jónsdóttir og Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Gunnar Sigurðsson sér um leikstjórn.
Á síðustu tíu árum hefur nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla á landinu staðið til boða að sækja sýninguna og hafa viðbrögðin verið mikil. Íslandsbanki hefur verið stoltur bakhjarl sýningarinnar síðustu fjögur ár.
Íslandsbanki hefur stutt uppsetningu verksins að undanförnu, en Birna Einarsdóttir, forstjóri bankans segir sýninguna eiga afar mikilvægt erindi í samfélaginu: \"Sýningin er bæði sláaandi og skemmtileg og hefur áhrif á unga sem aldna. Umræðan sem hefur skapast eftir sýningar sýnir hversu hugrakkt og opinskátt ungt fólk er i dag. Við hjá Íslandsbanka erum stolt af því að taka þátt í þessu verkefni.\"