Hvað átti katrín við með orðum sínum um bjarna ben ?

Svör Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við spurningum Stundarinnar um viðskiptaferil Bjarna Benediktssonar samhliða þingstörfum, hafa valdið mörgum heilabrotum, ekki síst varðandi það að þingmenn noti skattaskjól í viðskiptum sínum. Katrín sagði:

„Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklingshyggju og einstaklingsvæðingar stjórnmálanna.“

Sjá einnig: „Skapar tortryggni og vantraust“ segir Katrín um stjórnmálamenn í viðskiptum – Segir upplýsingarnar um Bjarna Ben hafa legið fyrir

Kaldhæðinn Össur

Svar Katrínar þykir mörgum býsna fræðilegt af stjórnmálamanni að vera, en Katrín er íslenskufræðingur, með meistarapróf í bókmenntafræðum og var málfarsráðunautur á RÚV og er því vel ritfær.

Hinsvegar segist Össur Skarphéðinsson, fyrrum utanríkisráðherra Samfylkingarinnar, enn vera að „japla“ á þessum orðum Katrínar, enda sé það vel þekkt að hann sé með slaka meðalgreind:

„Okkar ástkæri forsætisráðherra tjáir sig með einföldum og skýrum hætti þannig að hvert mannsbarn skilur:

„Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfislægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklingshyggju og einstaklingsvæðingar stjórnmálanna.“

Ég er að vísu með slaka meðalgreind einsog vel er þekkt og er enn að japla á þessu.“