Húsnæðisbæturnar sem boðaðar eru í stjórnarfrumvarpi Eyglóar Harðardóttur verða að óbreyttu skattskyldar. Þær eiga að koma í stað húsaleigubóta sem hafa staðið í stað árum saman. Þetta kemur fram í umsögn ríkisskattstjóra um frumvarpið sem valdið hefur titringi meðal stjórnarflokkanna.
Morgunblaðið rekur á forsíðu í dag umsagnir um frumvarpið og vitnar til ríkisskattstjóra og að það vanti ákvæði sem veiti undanþágu til þess að tekjurnar séu skattskyldar. Mogginn vitnar einnig til Elsu Láru Arnardóttur, varaformanns velferðarnefndar, sem segir að skilningur nefndarmanna hafi ekki verið sá að bæturnar væru skattskyldar.
Þá gera fleiri aðilar athugasemdir við frumvarpið.