Daglega er röð út úr dyrum hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og segir Hildur Edwald fagstjóri hjá ökuskírteina- og vegabréfadeild embættisins ástandið ekki lengur vera mönnum bjóðandi.
Vandræðin koma til vegna þess að sýslumannsembættum hefur verið fækkað og starfsfólki sömuleiðis og eins sakir þess að tvöfalt fleiri þurfa að endurnýja vegabréf sín í ár en vanalega. Árið 2005 voru gefin út vegabréf til tíu ára og 2010 voru gefin út vegabréf til fimm ára sem í öllum tilvikum þarf að endurnýja í ár. Þá bætir ekki úr skák að nú stendur yfir verkfall lögmanna innan Bandalags háskólamanna sem varað hefur í vikur en fyrir vikið staflast upp alls konar erindi hjá sýslumannsembættum sem bitna á almenningi sem þarf að virkja íbúðarlán, sækja vottorð af öllu tagi eða endurnýja skírteini. Verkfallið er þegar farið að hafa alvarleg áhrif á húsnæðismarkaði og valda margs konar hugarangri í viðkvæmum málaflokkum, en til dæmis er ekki hægt að afgreiða dánarvottorð sem skyldi.
Hildur segir í Morgunblaðinu í dag að húsnæði sýskumanns sé troðið af fólki: "Það er ekki hægt að ganga um með góðu móti, hér er stappað af fólki, bæði inni og frammi á gangi við útidyrnar, ekki eru sæti fyrir nærri því alla. Fólk hefur þurft að sitja í stiganum og bíða jafnvel úti," segir hún við blaðið.