Húsmæður: krónan rænir okkur!

Athafnakonan Margrét Kristmannsdóttir segir í nýjum pistli á hringbraut.is að í því felist mikil mótsögn að af þeim mikla fjölda Íslendinga sem vill taka upp nýjan gjaldmiðil í stað krónunnar dragi konur einna helst lappirnar.

Þarna vísar Margrét í nýja könnun Fréttablaðsins sem sýnir að yfir 50% landsmanna vilja aðra mynt en krónuna, konur þó síður en karlar: \"Í þessu felst mikil þversögn enda á hagsýni og íslenska krónan litla samleið þegar til lengdar er litið,\" skrifar Margrét.

\"En róðurinn er þungur,\" bendir hún á og minnir á hversu oft landsmenn hafi ekki fengið að heyra það á undanförnum árum að krónan hafi bjargað þeim í gegnum hrunið:  \"Og sú staðreynd er að mörgu leyti rétt – hún bjargaði miklu,\" skrifar Margrét en bendir aftur á móti á orsakavaldinn: \"Það gleymist hins vegar að nefna að við hefðum aldrei lent eins illa í hruninu ef ekki hefði verið fyrir íslensku krónuna.\" 

Hún kann líkingamálið: \"Við húsmæðurnar vitum þó að til að vera almennilegir uppalendur er það lágmark þegar unglingapartý fer úr böndunum að láta unglingana sjálfa þrífa upp skítinn. Það sama gerði krónan – eftir hrun þreif hún upp að hluta skítinn sem hún olli!  Það gerir hana ekki að bjargvætti fremur en að drukknir unglingar verði til fyrirmyndar daginn eftir að áfengisvíman er runnin af þeim.\"

Hún segir að þegar farið sé yfir heimilisbókhaldið komi í ljós að krónan sé ekki bjargvættur heldur óvinur: \"Lánin okkar eru annaðhvort verðtryggð og lækka seint eða með okurvöxtum sem fáir ráða við. Fjármagnskostnaður er því alla að drepa hvort sem það er hið opinbera – fyrirtæki eða heimili.  Og enn knýr peningastefnan Seðlabankann til vaxtahækkana og alltaf hleypur íslenskur almenningur hraðar og hraðar í þeirri viðleitni að vinna sér inn fleiri íslenskar krónur sem duga skemur og skemur.\"

Hún segir það ekkert hafa með ættjarðarást að gera að ríghalda í íslensku krónuna: \"Að skipta um gjaldmiðil gerir okkur ekkert að minni Íslendingum heldur snýst þetta um lífskjör,\" og metur það svo að allt hugsandi fólk hljóti að vilja börnunum sínum eitthvað annað en verðtryggingu og okurvexti og þar með að þau velji að búa á Íslandi með sambærilegum kjörum og best þekkist í nágrannalöndum okkar: \"Þegar hin hagsýna íslenska húsmóðir gefur sér tíma til að reikna þetta út mun ást hennar á íslensku krónunni dvína hratt.  Enda íslenska konan þekkt um allan heim fyrir framsýni og taka ekki þegjandi á móti árásum á sig og sína. En einmitt það gerir íslenska krónan  - rænir okkar um hábjartan dag.\"