Hneykslið kringum Facebook og Cambridge Analytica vefur enn upp á sig. Stofnun upplýsingamála í Bretlandi hefur krafist flýtiúrskurðar dómsstóla um húsleit hjá CA og einnig, að stofnunin taki við allsherjar gagnaúttekt sem Facebook hafði fengið sérfræðing til að gera hjá CA. Theresa May forsætisráðherra segist fylgjandi því að rannsókn fari fram á Facebook og CA.
Yfirvöld upplýsingamála hjá ESB hafa einnig sagt rannsókn vera að fara í gang og Robert Mueller, sérstakur saksóknari í afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum hefur líka krafist afhendingar gagna frá CA.
Húsleitarkrafan í gær kemur í kjölfar enn frekari uppljóstrana bresku sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4 um vafasöm vinnubrögð Cambridge Analytica þar sem yfirmenn CA voru sýndir bjóðast til að setja upp hneykslisgildrur fyrir pólitíska andstæðinga viðskiptavina sinna.
Hlutabréf Facebook hríðféllu á markaði í gær eftir að komst upp um að CA tókst að nota Facebook prófíla allt að 50 milljóna kjósenda fyrir bandarísku forsetakosningarnar 2016 með óleyfilegum hætti.
Yfirmaður upplýsingaöryggis hjá Facebook, Alex Stamos, sagði upp hjá fyrirtækinu í gær. Hann er sagður hafa verið á öndverðu meiði við aðalstjórnendur um hvernig taka skyldi á þessum málum. Stamos vildi að Facebook hefði allt upp á borðum um mengaðar Facebook upplýsingar og notkun pólitíska misnotkun Rússa á miðlinum.
Ekkert hefur heyrst frá Mark Zuckerberg, stofnanda og aðaleiganda Facebook um málið.