Lögreglan á Suðurlandi hafði í nógu að snúast í síðustu viku og voru mörg málin þar á bæ tengd dýrum með einum eða öðrum hætti. Á Hellu var ekið á svartan og hvítan kött sem var ómerktur og líklega villiköttur. Í Þykkvabæ var ekið á hross og var ökutækið illa farið en ekki er vitað um hvernig heilsa hestsins er, þar sem hann hljóp út í myrkrið eftir áreksturinn.
Þá var ekið á lamb á Meðallandsvegi og drapst það við áreksturinn. Var bíllinn illa farinn. Þá segir að laus hundur hafi hlaupið í veg fyrir bifreið á Suðurlandsvegi við Laugardæli. Neyddist ökumaðurinn til að nauðhemla til að koma í veg fyrir að lenda á dýrinu. Hundurinn hafði lítinn áhuga á að stoppa til að eiga frekari samræður við bílstjórann og hljóp af vettvangi en bílstjórinn tilkynnti lögreglu að eigandinn væri hvergi sjáanlegur.
Þá gekk Husky-hundur laus á Vík í Mýrdal en sá hundur lá undir grun um að hafa slitið sig frá eiganda sínum fyrr á árinu og drepið kött. Nú liggur sami hundur undir grun um að hafa drepið og síðan étið og gætt sér á gæs sem var það óheppin að verða á vegi hans. Er það mál til meðferðar hjá lögreglu.