Stofnfundur Miðflokksins var háður í dag í Reykjavík. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson talaði á fundinum og sagði hann flokkinn vera a miðju stjórnmálanna sem þó ekki merkir að flokkurinn fari milliveginn í öllum málum því það sé ekki hugmyndin með Miðflokknum.
Könnun sýnir að þetta framboð fengi níu prósent atkvæða og sex þingsæti.
Flokkurinn leggur áherslu á endurskipulagningu fjármálakerfisins og á að komi sé til móts við aldraða og að sett verði fram heildaráætlun í byggðamálum.
Heimild Hringbrautar var á fundinum og segir hún að margir kunnir Framsóknarmenn hafi verið á fundinum en einnig hafa verið þarna fólk sem er þekkt úr atvinnulífinu og þá einkum menn og konur úr sjávarútvegi og matvælaiðnaði.