Húsavíkurhöfn er yfirskuldsett

Húsvíkinga dreymir um að PCC  tvöfaldi framleiðslu sína eftir að fyrsta áfanga framleiðslunnar verður náð. Yrði tvöföldun til mikilla bóta fyrir rekstur Húsavíkurhafnar að sögn heimamanna.

Kristján Þór Magnússon, bæjarstjóri Norðurþings, segir í samtali við Hringbraut að það sé ekkert launungarmál að fjárhagur Húsavíkurhafnar sé afar þungur. Skuldir hafnarinnar hafi hrannast upp síðastliðin 10 ár og linnulítil lántaka frá aðalsjóði yfir í b-hluta rekstrarins hafi neikvæð áhrif á rekstur sveitarfélagsins. Höfnin hafi á rekstrarárinu þurft að fá um 60 milljóna króna fjárframlag að láni úr aðalsjóði sveitarfélagsins. Alls nemi skuldir hafnarinnar við aðalsjóð um 700 milljónum króna. Þá eru aðrar skuldir ekki meðtaldar.

Heimamenn á Húsavík hafa varið miklu fé í hafnarframkvæmdir síðustu ár vegna fyrirhugaðrar stóriðju við Bakka. Þeir fá einnig fjárhagslega fyrirgreiðslu af hálfu hins opinbera. Bæjarstjóri telur að með fjárhag hafnarinnar í huga dugi Bakka-verkefnið þó eins og lagt er upp með fyrsta áfanga ekki eitt og sér til að rétta úr skuldastöðunni. Mikilvægt sé að finna fleiri iðnaðarverkefni, helst 3-4 að sögn bæjarstjóra.

Hið opinbera, ríkið og Norðurþing, fengu með lögum frá Alþingi heimild til að veita milljarða fjárfyrirgreiðslu til stóriðju á Bakka. Tekist var á um lögmæti þess en úrskurður ESA féll heimamönnum í hag. Ríkissjóður og Norðurþing munu veita PCC aðstoðina í formi beins fjárstyrks. Styrkurinn nær til lóðarframkvæmda, afslátta á tekjuskatti, fasteignaskatti, hafnargjöldum og niðurfellingu ýmissa skatta og gjalda til allt að 10 ára. ESA samþykkti m.a. ríkisaðstoð til Hafnarsjóðs Norðurþings vegna uppbyggingar iðnaðarhafnar í Húsavík. Verður PCC  langstærsti notandinn að óbreyttu.

Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um hafnamál árið 2008 segir að framlegð níu hafna hafi þá verið neikvæð. Framlegð hafi verið verst hjá höfnum Norðurþings en Siglufjörður var í öðru sæti. Í skýrslu Hagfræðistofnunar kemur fram að tap sumra safna sé uppsafnað og hafi vaxið mest hjá Norðurþingi ef Hafnarfjörður er undanskilinn.