Húsavík býr sig undir fólksfjölgun

Gert er ráð fyrir að íbúum á Húsavík fjölgi um 350 þegar kísilverksmiðja Bakka tekur til starfa í lok árs 2017. Líklega verður að byggja nýjan leikskóla og talsvert af íbúðum í bænum. Aðalskipulag gerir ráð fyrir allt að 500 íbúðum.
 
Þetta kemur fram á fréttavef ruv.is í dag, en þar er rætt við 

Snæbjörn Sigurðsson, verkefnastjóra Norðurþings sem segir aukinn áhuga vera á byggingu íbúða auk þjónustu- og iðnaðarhúsnæðis í bænum. Gildandi aðalskipulag hafi þó gert ráð fyrir talsvert meiri uppbyggingu. Reiknað væri með að íbúum gæti fjölgað um meira en þúsund þegar uppi voru hugmyndir um byggingu álvers á Bakka. Nánast væri búið að ganga frá skipulagi á 65 íbúðum sem hægt væri að byggja með skömmum fyrirvara.

 

 

\"

Þannig að samkvæmt aðalskipulagi er gert ráð fyrir því að hægt sé að byggja hérna 500 íbúðir. Þannig að skipulagslega erum við vel undirbúin undir það og þyrftum ekkert langan tíma til þess að fjölga þá lóðum enn frekar,“ segir Snæbjörn við vefinn, en þar kemur fram að á reit við miðbæinn sé gert ráð fyrir að byggja megi 200 íbúðir. Hugsanlega megi svo nota íbúðir, sem bærinn á fyrir, í eins konar búsetukerfi.
 
Snæbjörn segir hreyfingu vera á fasteignamarkaði en staðan sé sú að verð á húsnæði sé töluvert undir byggingarkostnaði: \"

Þannig að á meðan það eru hús til sölu sem eru þegar byggð þá er erfitt að sjá fyrir sér mikla uppbyggingu á nýju húsnæði en það er ljóst að það þarf að bæta hér við töluverðu af húsnæði til þess koma fyrir öllum þeim íbúum sem við viljum koma inn á svæðið.“