Húsaleiga hámark 25% af tekjum

Eygló Harðardóttir, félags- og húnsæðisráðherra vill beita sér fyrir því að leiga fólks með lágar tekjur nemi ekki hærra hlutfalli en sem nemur 20 til 25% af tekjum þess.

Þetta er meðal þess sem ráðherrann skrifar á bloggsvæði sitt á Eyjunni, en þar boðar Eygló byggingu félagslegra leiguíbúð sem verða fjármagnaðar með stofnframlögum ríkis og sveitarfélaga og með beinum vaxtaniðurgreiðslum ríkissjóðs.

Samkvæmt þessu ætti einstaklingur með 300 þúsund krónur í mánaðartekjur að greiða 60 til 75 þúsund krónur á mánuði fyrir íbúð.

Með þessum aðgerðum segist Eygló vilja tryggja tekjulágum fjölskyldum, sem hingað til hafa ekki átt kost á íbúðum í félagslegu kerfi sveitarfélaganna, öruggan og vísan aðgang að ódýru og öruggu leiguhúsnæði.

Ráðherrann er með þessu móti að koma til móts við gríðarkegan vanda sem skapast hefur á húsnæðismarkaði á undanliðnum misserum, en fjöldi ungs fólks á í miklum erfiðleikum með að fóta sig á honum, enda er verðlagning á leiguhúsnæði og séreignum út úr öllu korti fyrir þennan aldurshóp.

Komiðp hefur fram að tæplega 40% Íslendinga á aldrinum 20 til 29 ára búi enn heima hjá foreldrum sínum. Í Danmörku er hlutfallið um 10% en í sumum öðrum Evrópulöndum mun hærra. Á Ítalíu, Spáni og Póllandi er það til að mynda á bilinu 60 til 80%.