Vatns- og krapaflóð á austurlandi

Lögreglan á Austurlandi afréð í gærdag í samráði við almannavarnarnefnd að rýma sex hús á Eskifirði, fimm við Bleiksárhlíð og eitt við Tungustíg vegna hættu á frekari flóðum í Grjótá, en mikill vöxtur hefur verið í ánni sem er beint ofan við nýtt dvalarheimili aldraðra í bænum.

Rýmingunni hefur nú verið aflétt, enda ástandið orðið stöðugt að sögn yfirvalda á staðnum, en þetta er fráleitt í fyrsta skipti sem hús eru rýmd við þessar götur Eskifjarðar af ótta við ofanflóð.

Grjótá hljóp yfir bakka sína í gærkvöld og virtist þá engan veginn vera á undanhaldi, enda veður vont og úrkoma mikil: \"Við óttumst að áin flæði yfir bakka sína og að annað flóð geti komið. Hún hefur aflagast svo mikið á ákveðnum stöðum fyrir ofan þessi hús að við ákváðum að grípa til þessa ráðs,“ sagði Jónas Wilhelmsson Jensen, yfirlögregluþjónn á Austurlandi í samtali við RÚV í gærkvöld. Haft var eftir honum í morgun að allt annað væri að sjá ána frá því í gær, dregið hefði úr krafti hennar. 

Vatnsveðrið í gærdag skilur víða eftir sig ummerki. Þannig er Vattarnesvegur í Reyðarfirði (vegur númer 955) enn ófær vegna vatnaskemmda en aðstæður verða kannaðar nú í birtingu.

Þá hefur Veðurstofan lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Og raunar féllu flóð í gær, þar á meðal talsvert mikið krapaflóð sem lék bæinn Aðalból í Hrafnkelsdal illa, svo sem sjá má af ljóssmyndinni sem fylgir þessari frétt, en hún var tekin eftir að flóðin féll á bæinn, braut þrjá glugga og flæddi inn í íbúðarhúsið: \"Þetta bara skell­ur á hús­inu af mikl­um krafti og fór inn í þrjú her­bergi,“ sagði Páll Páls­son bóndi á Aðal­bóli í Hrafn­kels­dal, í sam­tali við mbl.is en björg­un­ar­sveit­ar­menn fóru á staðinn til þess að aðstoða og var snjón­um mokað út úr hús­inu fram til miðnættis og því síðan lokað. 

Páll var einn í íbúðar­hús­inu þegar snjóflóðið féll á því. Aðspurður seg­ir hann við vefinn að mikið högg hafi komið á húsið þegar snjóflóðið skall á því. Hlut­irn­ir hafi gerst mjög hratt og það hafi ekki gef­ist mik­ill tími til að hugsa: \"Ég vissi að þetta var yf­ir­vof­andi, ég heyrði hvin og síðan kom rosa­legt högg strax á eft­ir þegar þetta skall á hús­inu.“