Stjórnarandstaðan á Alþingi, eins og hún leggur sig, ætlar að hunsa löngu boðaða þingveislu á Hótel Sögu í kvöld, þangað sem þingheimi og mökum, ásamt forseta Íslands hefur verið boðið. Helgi Hrafn Gunnarsson þingflokksformaður Pírata segir fullkominn trúnaðarbrest ríkja á milli stjórnarandstöðunnar og forseta Alþingis en sá síðarnefndi varð ekki við ósk andstöðunnar í morgun um þingfund í dag vegna þess pólitíska stórviðris sem nú geysar eftir að utanríkisráðherra ákvað að hafa Alþingi að vettugi í ESB-málinu. Við svona aðstæður hafi enginn áhuga á partýi, segir Helgi Hrafn í samtali við DV í dag. Í sama streng tekur Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingkona Samfylkingarinnar; þar á bæ muni allir sitja heima í kvöld.
Þetta er og verður einsdæmi í sögu þingveislna Alþingis, en þær eiga sér ríka hefð í sögu löggjafarsamkundunnar og njóta þeirrar ríku sérstöðu að þar getur enginn tekið til máls nema í bundnu máli. Þingveislunnar voru aflagðar strax eftir hrun í sparnaðarskyni en hafa nú verið haldnar að nýju þrjú síðustu ár. Útlit er fyrir að ekki verði mjög þröngt á þingi í veislunni í kvöld.