Hunsaði viðvaranir sérfræðinga

Sérfræðingar auðlindaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins vöruðu Jón Bjarnason, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við því að fyrirhuguð reglugerð um veiðistjórnun á makríl bryti í bága við ákvæði úthafsveiðilaganna. Þetta kemur fram í undirbúningsgögnum fyrir setningu reglugerðarinnar sem Fréttablaðið fékk aðgang að í krafti upplýsingalaga.

Sjá einnig: Blikur á lofti eftir makríldóma

Fyrirkomulaginu var komið á fót árið 2010 og hefur það verið við lýði síðan þá. Hæstiréttur dæmdi fyrirkomulagið ólögmætt í síðustu viku og féllst á viðurkenningarkröfu tveggja útgerða, Ísfélags Vestmannaeyja (ÍV) annars vegar og Hugins hins vegar, til skaðabóta. Tvær útgerðir til viðbótar, Vinnslustöðin (VSV) og Eskja, eiga sams konar mál fyrir héraðsdómi. Meðferð þeirra mála var frestað meðan dóms Hæstaréttar var beðið.

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/hunsai-vivaranir-serfraeinga