Hundur páls fann grunsamlegt efni í hafnarfirði: „ég held að við eigum við vandamál að etja þarna

 Páll Sigurjónsson var á göngu með hundinn sinn í morgun við Dofrahellu í Hafnarfirði þegar hann varð var við grunsamlegt efni úti í vegkanti sem hundurinn hans hljóp rakleiðis að.

„Ég veit ekki hvað þetta er en þetta er mjög grunsamlegt og ég tek ekki séns á að þetta sé eitthvað sem maður veit ekki hvað getur gert,“ segir Páll í samtali við Hringbraut.

„Ég passa verulega upp á hvað hann er að hnusa af vegna meltingarvandamála og hljóp ég því til og kippti honum frá þessu. Strax fór mig að gruna ýmislegt vegna fyrri reynslu þarna en ég sleppti honum þó aftur. Viti menn hann tók strauið yfir götuna og þar var önnur svona klessa. Ég rétt náði að stoppa hann af áður en hann fór að gæða sér á þessu.“

Segir Páll að hann hafi í heildina fundið fjórar klessur af einhverskonar efni sem leit út eins og deig. Inn í deiginu voru kögglar sem hann gat ekki greint hvað væru.

„Ég þreif þetta eins og ég gat upp en því miður varð eitthvað eftir sem er fast í malbikinu. Ég hringdi í lögregluna sem bað mig að taka myndir og senda sér. Þeir vildu ekki koma á staðinn svo ég fór með þetta dularfulla deig til þeirra og þeir létu mig henda því þeir vildu ekkert með þetta hafa. Þeir sögðu að sennilegast væri verið að eitra fyrir vargnum en það finnst mér frekar asnalegt miðað við hvernig þetta var staðsett. Ég held að við eigum við vandamál að etja þarna og það er ekki gott þegar maður veit ekkert meira um þetta.“