„hundskammar eftirmenn sína eins og óþekka krakka“

„Ég man eiginlega ekki eftir dæmi þar sem að gamall formaður hundskammar eftirmenn sína eða nýja forystu eins og óþekka krakka,“

Þetta sagði Ólafur Þ. Harðarson, Prófessor í Stjórnmálafræði við Háskóla Íslands um Davíð Oddsson og þau átök sem nú eiga sér stað innan Sjálfstæðisflokksins í fréttum RÚV í gærkvöldi. Þá sagði Ólafur að áberandi hafi verið að ungar konur innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið óhræddar við að svara Davíð fullum hálsi þegar hann hafi gagnrýnt sinn gamla flokk.   

„Á meðan margir aðrir hafa látið skammir Davíðs svona um langa hríð yfir sig ganga, Þá standa þessar ungu konur, reynslulausu ungu konur og svara fullum hálsi.“

Þá líkt Ólafur Davíð við Jónas frá Hriflu en hann var formaður Framsóknarflokksins frá 1934 til 1944. Átti hann það til að gagnrýna eftirmenn sína harðlega, þá sérstaklega Hermann Jónsson og Eystein Jónsson. Þá telur Ólafur að Davíð sé nær Miðflokknum í stjórnmálaskoðunum en sínum gamla flokki. Ólafur sagði:

 „Það er náttúrulega alveg ljóst að Davíð Oddsson hefur í ritstjórnargreinum sínum, síðustu árin staðið málefnalega mun nær Miðflokknum en Sjálfstæðisflokknum.“