Fleiri sýrlenskar og vanfærar konur eru á flótta en allar íslenskar konur á barneignaraldri. Með þeim eru oft ungabörn sem lifa við ógn og óöryggi.
Á Íslandi eru 78 þúsund konur á aldrinum 15-49 ára. 70 þúsund sýrlenskar konur eru barnshafandi á flótta og þá eingöngu utan Sýrlands. Ef konur í Sýrlandi eru teknar með þá eru 500 þúsund sýrlenskar vanfærar konur á flótta.
Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women sagði á Hringbraut að mikið hafi áunnist í að sinna konum á flóttamannasvæðum, svo sem með hreinlætisaðstöðu fyrir konur og þar sem þær hafa sínar eigin vistarverur og fái góða læknishjálp. Nauðsynlegt er að taka mið af þörfum kvennanna svo þær geti gætt barna sinna á þessu hættulega ferðalagi og veita þeim mæðravernd og börnum þeirra ungbarnavernd. Þeim stafar þó stöðug ógn af mansali.
Konur og stúlkur eru berskjaldaðri en nokkru sinni fyrir ofbeldi og öfgahópum. Talið er að ein af hverjum fimm konum á flótta eða á hamfarasvæðum hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. Mjög líklega fleiri – í ljósi þess hve erfiðlega tekst oftar en ekki að afhjúpa ofbeldið.
Alþjóðlegur dagur flóttamanna var í gær.