Hundruð veðurteppt um helgina

Mikið ólag hefur verið á samgöngum um vestanvert landið það sem af er morgni og er útlit fyrir að margar helstu þjóðleiðir um Vesturland verði ekki opnaðar fyrr en undir hádegi. Fyrr í morgun tókst starfsmönnum Vegagerðarinnar að opna Holtavörðuheiði með því að sneiða fram hjá fjölda bíla sem þar sat fastur frá því um helgina. Brattabrekka er aftur á móti enn ófær og það sama gildir um marga fáfarnari vegi niðri í Dölum. Hundruð ferðalanga á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur gátu sig sig lítið hreyft sakir ófærðarinnar í gærdag - og var bekkurinn því þétt setinn enn einn ganginn í Staðarskála í botni Hrútafjarðar, enda heiðarnar í kring, hvort heldur er til suðurs eða vesturs, kolófærar á þeim tíma. Veður verður skaplegt í dag, en svo brestur á með keyfandi byl á morgun á svæðinu milli Eyjafjalla og Vestfjarða - og eru allir vegfarendur beðni rum að hafa það í huga.