Kynning á hundruðum námsleiða og spennandi vísindum og nýsköpun ásamt tónlist, dansi og söng er meðal þess sem fyrir augu ber á Háskóladeginum í dag, 5. mars í Háskóla Íslands.
Forráðamenn skólans opna dyr skólans í dag fyrir landsmönnum öllum og býður þeim að taka þátt í ótal viðburðum og uppákomum sem sýna nýsköpun og vísindi í litríku og lifandi ljósi. Hinir opinberu háskólarnir þrír kynna einnig námsleiðir sínar á háskólasvæðinu.
Húsakynni Háskóla Íslands verða opin á milli kl. 12:00 og 16:00 og líkt og fyrri ár verður áhersla lögð á að kynna hið fjölbreytta námsframboð sem finna má í skólanum, en yfir 400 námsleiðir í grunn- og framhaldsnámi eru í boði. Þá fer einnig fram kynning á margþættri og spennandi starfsemi og þjónustu. Gestir geta skoðað rannsóknastofur, tæki, búnað og húsakynni. Á staðnum verða bæði vísindamenn, kennarar og nemendur úr öllum deildum háskólans sem svara þeim spurningum sem brenna á gestum um allt milli himins og jarðar.
Fræðasvið Háskóla Íslands eru fimm og verða með kynningar á eftirtöldum stöðum:
Hugvísindasvið kynnir námsleiðir sínar í Aðalbyggingu Háskólans en þar gefst gestum einnig kostur á að grafa eftir fornmunum og rækta í sér skáldið með því að taka þátt í sannkallaðri samyrkju á vegum ritlistarnema og semja saman ljóð. Kínverskur dreki mun liðast um tröppur hússins og japanskur dans og salsadans ásamt stappi og rytmaklappi verður einnig í boði.
Þrjú fræðasvið Háskólans, Menntavísindasvið, Félagsvísindasvið og Heilbrigðisvísindasvið kynna námsleiðir sínar á Háskólatorgi. Þar verður m.a. hægt að reyna sig við klifurvegg Menntavísindasviðs, skrá nafn sitt í stærstu gestabók í heimi, læra réttan handþvott undir leiðsögn hjúkrunarfræðinema, fræðast um það gerist á bak við tjöldin í kjaraviðræðum og hvernig hægt er að komast í sjálfboðastörf í Afríku. Í Stúdentakjallaranum á Háskólatorgi munu svo Balkanbandið RaKi og Húsbandið halda uppi stuðinu.
Verkfræði- og náttúruvísindasvið kynnir sínar fjölbreyttu námsleiðir í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, eins og undanfarin ár. Þar verður einnig hægt að berja augum glæsilegan rafknúinn kappastursbíl sem verkfræðinemar í Háskóla Íslands í liðinu Team Spark hafa hannað. Þá verður boðið upp á hinar sívinsælu ferðir um himingeiminn í Stjörnuverinu og færi gefst á skoða skemmtilegar og spennandi rannsóknastofur líf- og jarðfræðinga við Háskóla Íslands þar sem ýmsum kynjaskepnum bregður fyrir.
Í Háskólabíói verður einnig sprellfjörug og fræðandi dagskrá. Vísindasmiðja skólans verður opin upp á gátt en þar getur öll fjölskyldan kynnt sér undur vísindanna með lifandi hætti enda er þar fléttað saman leik og ljóma vísindanna. Félagar úr Sprengjugengi Háskóla Íslands, sem er fyrir löngu orðið landsþekkt, verða með kraftmiklar og litríkar sýningar í sal 1 í Háskólabíói kl. 13:00 og 14.30.