Víða sæta dýrin illri meðferð í hinum svokallaða matvælaiðnaði, og er oft farið heiftarlega með þau í sláturhúsum og flutningi þangað. Koma þau stundum nær dauða en lífi þar að; fótbrotin, lemstruð og limlest. Kunnugur maður sagði: „Ef sláturhús hefðu glerveggi, og ef eymdar- og kvalaróp dýranna heyrðust út, væri löngu búið að loka þeim öllum“.
Einna verst allra búgreina, með tilliti til kvalræðis dýranna, er þó fyrir mér loðdýraræktin. Þar er kvalræðið vitað og tekið með í reikninginn frá byrjun.
Hér eru einkum haldnir minkar. Við náttúrulegar aðstæður þurfa þeir lífssvæði upp á 10-20 ferkílómetra, þar sem þeir geta ráfað um frjálsar, merkt sín svæði, grafið, klifrað, synt og aflað sér lífsviðurværis.
Í loðdýraræktinni eru þessum lífverum troðið inn í vírnetabúr, 30 x 60-70 sm, þar sem þær eru látnar dúsa og þjást ævilangt. Búklengd með skotti slagar upp í lengd búranna. Fætur hvíla lengst af á járnvírum, 2,4 mm skulu þeir vera, en þykkari ekki, svo úrgangur úr dýrunum falli greiðlega í gegn. Hann hrúast svo oft upp undir búrum og leggur þá af honum hinn versti ódaunn og stækja.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190129875