Hundrað milljónir í byggðastyrki

Hundrað milljónum verður varið í uppbyggingu ljósleiðarakerfis í strjálbýlum sveitarfélögum. Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra vísar í því til markmiða byggðaáætlunar og umsagnar stjórnar Byggðastofnunar.

Fjárveitingin kemur til viðbótar 450 milljónum úr fjarskiptasjóði vegna verkefnisins Ísland ljóstengt 2017.

Nítján sveitarfélög eiga kost á fjárstyrk, allt frá einni milljón til tólf milljóna króna. Mest fær Borgarbyggð eða fullan styrk upp á rúmlega 12 milljónir. Næst hæstu styrkirnir fara til Fljótsdalshéraðs og sveitarfélagsins Skagafjarðar.