Hundrað manns missa vinnuna í Arion banka. Fjórir af hverjum fimm missa vinnuna í höfuðstöðvum bankans en einn af hverjum fimm í útibúum. Í tilkynningu á vef Arion banka segir:
Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í morgun nýtt skipulag bankans sem tekur gildi í dag. [...] Markmið breytinganna er að styrkja samkeppnishæfni bankans og auka arðsemi eiginfjár [...] Starfsfólki bankans mun við þessar breytingar fækka um 12% eða um eitt hundrað. Þar af starfa um 80% í höfuðstöðvunum bankans og um 20% í útibúum. Vinnumálastofnun hefur verið greint frá þessu.
Þá er vitnað í Benedikt Gíslason bankastjóra. Hann segir:
„Sterk eiginfjár- og lausafjárstaða Arion banka felur í sér að bankinn stendur afar traustum fótum. Hins vegar er ljóst að rekstrarkostnaður er of hár og skipulag bankans tekur ekki nægjanlega vel mið af núverandi markaðsaðstæðum og þörfum atvinnulífsins. Umhverfi fjármálafyrirtækja hefur breyst mikið á undanförnum árum. Íþyngjandi breytingar á regluverki og sköttum á síðastliðnum áratug hafa leitt af sér mikinn viðbótarkostnað [...] Þetta verður erfiður dagur en við kveðjum í dag hæft og gott samstarfsfólk sem ég efast ekki um að muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.“