Hundrað heróínsjúklingar í góðum málum

Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að framfarir í lyfjum hafi meðal annars gert heróínsjúklingum, til dæmis, fært að vera án neyslu efnisins og fólkið sé á allt öðrum stað og betri en annars væri.
Þórarinn, sem er í viðtali í Þjóðbraut í kvöld, talar einnig um að meðal starfsfólks í heilbrigðiskerfinu, séu fordómar gagnvart þeim sem eru háðir fíkniefnum. Þá segir Þórarinn alkóhólisma vera heilasjúkdóm og að um það þurfi ekki að efast.
 
Sýnishorn úr viðtali Sigurjóns við Þórarinn fylgir hér. Þátturinn er á dagskrá kl.21.00 í kvöld.