Tvær björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út í gær til bjargar hundi sem fallið hafði í sprungu í sumarbústaðahverfi á Þingvöllum. Hundurinn féll fimm til sex metra niður í sprunguna, opið á henni var ekki stórt og vel falin í kjarrlendi. Eigendur hundsins sáu hann ekki en heyrðu til hans.
10 björgunarsveitarmenn fóru á vettvang og þurftu þeir að síga niður sprunguna og finna hundinn. Tókst þeim að koma ólum um hann og hífa hann upp, hann komst úr sprungunni heill á húfi seinni partinn í dag.