Hundaskíturinn degi lækni að kenna!

Morgunblaðið tekur undir gagnrýni Lífar Magnúsdóttur, varaborgarfulltrúa VG í blaði dagsins, en Líf hefur kvartað yfir hundaskít í Vesturbæ Reykjavíkur. Víkverji dagsins í Mogganum segist sammála gagnrýni Lífar en bendir á að róta vandans sé að leita í Ráðhúsinu.

Mikil umræða hefur orðið um sorphirðumál í höfuðborginni síðustu daga og hefur Morgurblaðið þar farið fremst í flokki í gagnrýninni umræðu. Víkverji segir að í Ráðhúsinu sé maðurinn sem státi af heilbrigði í ferilskrá og er þar átt við lækninn og borgarstjórann, Dag B. Eggertsson, Samfylkingu. Hann ásamt öðrum manni í húsinu sem „kenndur sé við holur“ hafi séð til þess að borgin líti nú út eins og öskuhaugur. Sé ekki að undra í slíku ástandi að eigendur hunda hafi ekki fyrir því að hirða upp skít gæludýra sinna.

Víkverji, sem er nafnlaus ritstjórnardálkur innan Morgunblaðsins, lýkur þó ádrepu sinni gagnvart meirihluta borgarstjórnar um rusl og ruslaralýð með því að skrifa að til bóta sé að eigendur hunda hirði upp eftir þá.