Hundaeigandinn gaf sig fram - „málið nú komið í eðlilegan feril“

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum tilkynnti í kvöld að eigandi hunds, sem beit 9 ára gamla stelpu við Heiðarskóla í Reykjanesbæ í dag, hafi gefið sig fram. Lögreglan segir að málið sé nú komið í eðlilegan feril hjá þeim. Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu í dag um að stelpan hafi verið mjög skelkuð og að leitað væri að eiganda hundsins. Hundurinn var ekki í bandi og þegar stúlkan nálgaðist hundinn beit hann hana. 

Lögreglan tók fram í yfirlýsingu sinni að þeir hafi eytt færslu sinni fyrr um daginn þar sem margar athugasemdir frá fólki hafi verið afar óviðeigandi.