„hún er að setja upp pólitískt leikrit“

Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, segir eðlilegt að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sitji í hópnum sem fari yfir niðurstöður skýrslu innri endurskoðunar um Braggamálið. Í skýrslunni var farið hörðum orðum um stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, þá sér í lagi Skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, sem heyrir undir Stefán Eiríksson borgarritara, en fram kemur í skýrslunni að hún hafi í raun heyrt undir borgarstjóra. Í skýrslunni kom fram að lög hefðu verið brotin í hundruð milljóna framúrkeyrslu, verkefnið hafi nánast gleymst í kerfinu og að verktakar hefðu verið ráðnir í gengum kunningsskap.

Líf segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það sé eðlilegt að Dagur eigi sæti í þriggja manna hópnum sem fari yfir niðurstöður skýrslunnar.  „Mér finnst það eðli­legt því hann er æðsti yf­ir­maður stjórn­sýsl­unn­ar og æðsti yf­ir­maður borg­ar­inn­ar og á meðan hann er það þá hlýt­ur hann að njóta ein­hvers trausts til að fara í saum­ana á því sem bet­ur má fara inn­an stjórn­sýsl­unn­ar. Þannig að að svo stöddu finnst mér ekk­ert að því að hann taki sæti í þess­um hópi,“ seg­ir Líf.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/28/lif-segir-edlilegt-ad-dagur-se-hopnum-sem-fer-yfir-braggamalid-hun-er-ad-setja-upp-politiskt-leikrit/