Huldumaður og lögfræðingur rífast við rafbílaeigendur: „Ekkert drama í gangi hér“

„Okkur þykir ótrúlega leitt að tilkynna ykkur að frá og með mánudeginum 28. júní þurfum við að slökkva á öllum 156 götuhleðslum ON. Er það gert í kjölfar þess að Ísorka kvartaði yfir því að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er gjaldfrjálst,“ segir í færslu ON Þjónustu í hópnum Rafbílar á Íslandi, hópur eigenda rafbíla.

„Þetta er ömurleg staða fyrir rafbílaeigendur sem við hörmum mjög. Við munum gera okkar besta til að leysa málin þannig að þetta standi ekki í vegi fyrir orkuskiptum til lengri tíma litið. Áfram orkuskipti!“

Ekki eru allir par sáttir við þessa færslu frá huldumanni Orku náttúrunnar og sköpuðust háværar umræður.. Forsaga málsins er að kærunefnd útboðsmála felldi útboð Reykjavíkurborgar úr gildi þar sem útboðið fór ekki fram á EES-svæðinu og var borgin sektuð og milljónir. ON, sem er nánast alfarið í eigu Reykjavíkurborgar, hafði betur en Ísorka í útboðinu.

„Ekki er þetta Ísorku til framdráttar,“ segir Steinn nokkur um málið. Var honum svarað: „Ég get ekki séð að þetta sé Ísorku að kenna heldur.“

Atli nokkur segir: „Eins hentugt og þetta er fyrir mig þar sem on stöðin er í 30 metra fjarlægð frá hurðinni heima, þá styð ég Ísorku, svona er að vanda ekki útboð og gera hlutina rétt. Alltaf sama fljótfærnin.“

Nokkrir netverjar skutu föstum skotum á ON: „ON hafa fengið ýmis verk án útboða. Komin tími að tekið sé á innanhúspólítík.“ Þá mætti Íris Lind, lögfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, móðurfélagi ON: „það er ekki rétt að ON hafi fengið ýmis verk án útboða? Hvað ertu að vísa í?“

Gagnrýnin hélt áfram: „Skil ekki að henda grjóti í Ísorku. Reykjavíkurborg skeit upp á bak með því að halda ekki útboð og rétta ykkur þetta verkefni. Bara flott að samkeppni sé til,“ segir einni færslunni. „Þetta var dæmt ólöglegt og því skiljanlegt að ísorka yrðu ósátt og það að svona stórt fyrirtæki talar niður annað fyrirtæki er ekkert eðlilegt.“

Hörður Ágústsson, best þekktur sem Höddi í Macland, sagði: „Úff, þetta er ekki góður texti til að setja frá sér í nafni fyrirtækis.“

Þá sagði Sigurður nokkur: „Það er ykkur ekki til framdráttar að kenna Ísorku um klúður Reykjavíkurborgar.“

Huldumaður ON mætti þá í athugasemdirnar og fór yfir málið, ON hafi hætt að rukka þegar kvörtunin barst: „Ísorka sætti sig hinsvegar ekki við það og kvartaði til borgarinnar sem í kjölfarið fer fram á að straumur verði tekinn af götuhleðslunum, mörgum rafbílaeigendum til vandræða. Við vonum svo innilega að deiluaðilar (Reykjavíkurborg og Ísorka) finni á lausn á málinu sem allra fyrst svo hægt verði að hlaða í þessum 156 hleðslustöðvum sem ON hefur komið upp um alla borg.“

Undir þetta taka fjölmargir, þar á meðal nokkrir starfsmenn OR og ON.

Þá var svarað: „Reykjavíkurborg skeit einaf erðina en upp á bak en það að þið skjótið niður samkeppni aðila á samfélagsmiðlum er slappt. Þið mynduð gera nákvæmlega sama ef þið væruð í sporum Ísorku.“

Þá svaraði fulltrúi ON: „Ekki verið að skjóta neinn niður heldur að upplýsa hvers vegna ekki er lengur hægt að hlaða í þessum götuhleðslum.“

Gagnrýnin hélt áfram: „Þið hefðuð getað hent þessu inn á ykkar síðu, heimasíðu og svo framvegis. Það sem ég tel lágt er að fara inn á spjallhóp og skjóta svona á annað fyrirtæki. Hefðuð getað alveg sleppt þessu facebook drama sem virðist vera daglegt brauð í dag.“

ON Þjónusta svaraði: „Þetta fór auðvitað líka inn á heimasíðuna og á samfélagsmiðla. Það eru margir hér inni sem sjá það ekki og því fín leið til þess að ná til þeirra sem treysta á okkar þjónustu. Ekkert drama í gangi hér.“