Hjúkrunarfræðingar skila sér til baka

All margir hjúkrunarfræðingar sem sögðu upp í miðri kjaradeilu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið eru byrjaðir að skila sér til baka eftir úrskurð kjaradóms sem kom verulega til móts við kröfur stéttarinnar. 

Almennt virðast hjúkrunarfræðingar heldur sáttir við úrskurðinn með kveður á um samning til fjögurra ára, en á þeim tíma hækka launin um vel á þriðja tug prósenta sem er nokkuð umfram það sem ríkið bauð á sínum tíma.

Sig­ríður Gunnarsdótttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum seg­ir við Morgunblaðið í dag að eng­ar ná­kvæm­ar töl­ur liggja fyr­ir um þá sem hafi snúið aft­ur til starfa, en flest­ar upp­sagn­ir taka gildi 1. októ­ber: \"Þetta kem­ur víða inn og satt best að segja hef­ur verið ró yfir þessu öllu. Fólk kynn­ir sér nú hvað felst í þessu, ein­hverj­ir hafa dregið upp­sagn­ir sín­ar til baka, en alls ekki all­ir. Fólk ígrund­ar þetta í ró­leg­heit­um,“ seg­ir hún við blaðið.