Rúmlega ár er liðið frá því að Hugverkaráð SI-Samtaka iðnaðarins var sett á laggirnar. Hugverkaráð SI styrkir þau málefni sem eru sameiginlega fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki.
Markmið Hugverkaráðs SI er að efla samkeppnishæfni hugverkafyrirtækja og tæknifyrirtækja á Íslandi með því að vera leiðandi afl í hagsmunamálum og stefnunmálum þeirra. Í Hugverkaráði SI sitja fullttrúar sjö starfsgreianhópa sem tilheyra hugverkasviði Samtaka iðnaðarins.
Tækni- og hugverkafyrirtæki - oft flokkuð sem annar iðnaður - afla í dag um 22% af gjaldeyristekjum Íslands. Lausnir tækni- og hugverkaiðnaðarins eru til hagsbóta í öllum atvinnugreinum og auka verðmætasköpun og gæði.
rtá
Nánar www.si.is