„Ég passa mig á að dvelja ekki í einhverri eftirsjá eftir einhverju sem gerðist aldrei hvort sem er. Hvað þá að fara að sökkva mér ofan í það að hafa áhyggjur af einhverjum hlutum sem gerast aldrei eða munu aldrei gerast.“
Þetta sagði tónlistarmaðurinn Páll Óskar í viðtali í Bakaríinu á dögunum en viðtalið hefur vakið nokkra athygli. Þar talaði Páll Óskar um það sem skipti mestu máli í lífinu. Sagði Páll að fólk ætti að vera þakklátt fyrir að fá að vakna heilbrigt á morgnanna.
„Maður vaknar á morgnanna, opnar augun, maður hefur sjón, lappirnar hreyfast, puttarnir eru í lagi, ég get farið fram úr. Það er fullt af fólki sem getur ekki farið fram úr á morgnanna en ég er einn af þeim sem get það,“ sagði Páll Óskar og bætti við:
„Ég passa mig á því að temja mér alveg súper, súper yfirdrifið mikið þakklæti. Ef maður passar sig á því að taka svona þakklætismöntrur, þá bítur bara ekkert á þig; allt þetta dægurþras, reiðin, pirringurinn, gremjan sem sækir að manni um leið og maður vaknar eða opnar Facebook.“
Þá sagði Páll:
„Þú hefur minni áhuga á því að ybba gogg yfir einhverju sem kemur þér ekki við. Ég veit ekkert um orkupakka þrjú og er ekki kommenta á það, hef enga þörf fyrir það. Ég hef margt betra að gera.“