Hugvekja björgvins: ekki öll börn sem þurfa geðlækna - en öll þurfa þau tíma með mömmu og pabba

„Það eru ekki öll börn sem þurfa á sálfræðingum eða geðlæknum að halda. Heldur foreldrum sínum. Ég er sannfærður um að mörg barna í vanda þurfa bara á mömmu og pabba að halda.“

Þetta segir Björgvin Páll Gústafsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, í helgarviðtali við Fréttablaðið. Þar opnar Björgvin sig inn að kviku en hann átti afar erfiða æsku. Björgvin segir:

„Á Íslandi erum við að berjast við tímann, við vinnum alltof mikið og börnin fá of lítinn tíma með okkur. Við kvörtum yfir skólakerfinu, finnst vandinn hljóta að stafa þaðan,“ segir Björgvin og bætir við:

„En hvað erum við sjálf að gera fyrir börnin okkar?“

Björgvin segir að foreldrar verði að spyrna við fótum og krefjast tíma með börnunum.

„Þetta byrjar hjá okkur,“ segir Björgvin og bætir við á öðrum stað:

„Í mínum draumaheimi væri frábært ef börn fengju að vera heima með foreldrum sínum einn dag í viku. Það væri skólaskylda fjölskyldunnar einn virkan dag í viku. Börn læra svo mikið af foreldrum sínum og þau verða að finna til öryggis.“

Þá á Björgvin sér ósk sem hann vonar að rætist við lok handboltaferilsins. Það er ósk um virðingarvert og mikilvægt hlutverk.  

„Í fullri einlægni þá get ég sagt þér að minn draumur er að verða heimavinnandi húsfaðir,“ segir Björgvin og bætir við að hann sé alinn upp af konum í kvennaheimi.  

„Ég skil hvað þetta er dýrmætt og ég sé líka hvernig samfélagið dregur okkur samt í aðra átt. Í átt að fortíðinni og hinu karllæga. Ég vil ekki að samfélagið fari ofan í þann pytt, haldi áfram að þrengja að tímanum og hinu góða lífi, hversdeginum með börnunum, því það er betra líf í boði.“