Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur er gestastjórnandi í þættinum 21 - Hann skoða bankahrunið haustið 2008 frá ýmsum hliðum í þættinum með ólíkum viðmælendum, nú þegar tíu ár eru liðin frá þessum örlagaríku atburðum sem skóku íslenskt þjóðfélag. Viðmælandi Björns Jóns í kvöld er Gunnlaugur Jónsson verkfræðingur, en árið 2012 kom út bók hans Ábyrgðarkver, sem fjallaði um ábyrgð í tengslum við bankahrunið og hvaða lærdóma mætti draga af bankahruninu. Gunnlaugur starfaði á sínum tíma í banka og vinnur nú að stofnun Fjártækniseturs. Hann fjallar í viðtalinu líka um þær miklu breytingar sem eru að verða á bankarekstri.
Viðtalið í heild má sjá hér að neðan: