Hugsar ekki um frumsýninguna

„Ég er sjaldan komin á frumsýningu í huganum“, segir Ísold Uggadóttir leikstjóri á Þjóðbraut en fyrsta kvikmynd hennar í fullri lengd Andið eðlilega hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur og verðalaunuð við frumsýningu á Sundance kvikmyndahátíðinni.

Almennar sýningar hófust fyrir tæpri viku á kvikmyndinni en frumsýning var á Sundance kvikmyndahátíðinni. Myndin var valin þar til sýninga sem er stórt skref en Ísold bætti um betur og hreppti verðlaun sem besti leikstjóri í flokki erlendra kvikmynda auk þess sem hún fékk alþjóðleg gagnrýnendaverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg. Ísold er líka handritshöfundur myndarinnar.

Í myndinni fléttast saman örlög tveggja kvenna, önnur er flóttakona og hælisleitandi frá Gíneu-Bissá, heitir Adja og hin er íslensk, hún Lára sem vinnur við vegabréfaeftirlit og stöðvar Ödju við komuna til landsins.

Kristín Þóra Haraldsdóttir fer með aðalhutverkið og leikur Láru og Babetidu Sadjo, belgísk leikkona er Adja. Patrik Nökkvi Pétursson leikur Eldar, son Láru.

 „Lágstemmd og hjartnæm“, segir einn af mörgum erlendum gagnrýnendum um myndina. „Vel leikið raunsæislegt drama“ er skrifað á öðrum stað og einnig að þarna fari mynd sem snerti á málum sem nú séu efst á baugi. „Rammsterkt drama“, skrifar gagnrýnandi Morgunblaðsins.